16:00
|
Broken Promises. The High Artic Relocation |
![]() |
Leikstjóri Patricia V. Tassinari, enskt tal, 1995, 52 mín. Flokkur: Inúítar og Québec |
||
Sumarið 1953 flutti kanadíska ríkisstjórnin sjö Inúítafjölskyldur frá N-Québec norður á heimskautasvæðin. Þær fengu loforð um gnótt af fiski og veiðibráð - betra líf. Stjórnvöld fullvissuðu Inúítana um að ef áformin gengju ekki upp, gætu þeir snúið aftur eftir tvö ár. Tveimur árum síðar bættust 35 Inútíar við og það liðu 30 ár þangað til nokkurt þeirra sá land forfeðra sinna á ný. Nuttaq Média (Montréal, Québec) fá þakkir fyrir mynina. |
||
17:00
|
Atanarjuat. The Fast Runner |
![]() |
Leikstjóri Zacharias Kunuk, Inuktitut m/íslenskum texta, 172 mín. Flokkur: Inúítar |
||
Illur, óþekktur seiðkarl sundrar litlu flökkusamfélagi Inúíta og kemur rót á jafnvægi fjölskyldna og samhug. Tuttugu árum síðar birtast tveir bræður, Amaqjuag - sá sterki og Atanjurat - hraðskreiði hlauparinn, til að takast á við hið illa. Atanjurat vinnur hönd hinnar fallegu Atuat frá Oki, hofmóðugum syni höfðingjans, sem sver að hefna sín. Oki ræðst á bræðurna þar sem þeir sofa og myrðir Amaqjuag. Á ótrúlegan hátt sleppur Atanjurat nakinn á flótta yfir frosið vorhafið. En getur hann flúið hringrás hefndarinnar sem hann skildi við? Myndin hlaut verðlaunin Prix de la Caméra d´Or, sem veitt eru leikstjórum fyrir frumraun sína, á kvikmyndahátíðinni í Cannes árið 2001. Isuma Productions (Iglooik, Nunavut) og Bergvík ehf. (Reykjavík) fá þakkir fyrir myndina. |
||