Festival des cinémas nordiques, Reyjavik, Islande

 

MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2006

Allar myndirnar eru sýndar í Norræna húsinu
(www.nordice.is • Sturlugata 5 • 101 Reykjavík • Ísland)
Ókeypis aðangur

 

 

16:00


La grande séduction

La grande séduction
 

[Seducing Doctor Lewis]

Leikstjóri Jean-François Pouliot, franskt tal m/enskum texta, 108 mín.

Flokkur: Québec.

St. Marie-La-Mauderne er lítið og mjög afskekkt fiskiþorp. Í átta ár hafa íbúar þess, íklæddir bættum peysum og depurð, vikulega staðið í röð og beðið eftir atvinnuleysisbótum. Hugurinn hvarflar til hinna gömlu góðu daga þegar aflinn var nægur, sjómennirnir stoltir og lífið virtist töfrum líkast. Dag einn bankar sáluhjálpin á dyrnar í líki lítils fyrirtækis sem vill reisa verksmiðju á eyjunni, þó með því skilyrði að þar búi læknir í fullu starfi. Sá möguleiki virðist fjarri þar til ungur læknir í Montréal lendir í óheppilegu atviki með umferðarlögreglu og er allt í einu staddur á bát á leið til þorpsins. En hvernig er hægt að sannfæra hinn unga og myndarlega Lewis lækni um að dvelja á þessum eyðilega útkjálka?

Max Films (Montréal, Québec) og Oy Future Film Ab (Reykjavík) fá þakkir fyrir myndina.

 

18:00


Mémoires affectives

Mémoires affectives
 

[Looking for Alexander]

Leikstjóri Francis Leclerc, franskt tal m/enskum texta, 100 mín.

Flokkur: Québec.

Alexandre Tourneur, 41 árs, hefur legið lengi í dái eftir slys og verið úrskurðaður látinn þegar hann vaknar úr dáinu. Slysið hefur alvarlegt minnisleysi í för með sér. Á leið sinni til bata hittir hann vini og fjölskyldu og ákveðnar minningar sækja á hann. Undir hinum gleymdu minningum hans liggja endurminningar sem bera vott um fjarlæga og ofbeldisfulla fortíð. Leiðangur Alxeandre í leit að minni sínu leiðir hann til staðar sem hann hafði svarið að snúa aldrei aftur til. Hann uppgötvar loks sannleikann með því að sækja uppruna dularfullra minninga sinna heim.

Francis Leclerc og Les Films Séville (Montréal, Québec) fá þakkir fyrir myndina.

Logo Imaginaire du Nord
Logo Reykjaviku Akademian
Logo Embassy of Canada
Logo CRILCQ
Logo UQAM
Logo Winter Festival of the City Reykjavik
Logo Kviksaga - Documentary Center