16:00
|
Mon oncle Antoine |
![]() |
[My Uncle Antoine] Leikstjóri Claude Jutras, franskt tal m/enskum texta, 1971, 110 mín. Flokkur: Québec |
||
Myndin er almennt álitin meistaraverk kvikmyndagerðar í Québec og hefur hlotið ótal alþjóðleg verðlaun. Myndin gerist á jóladag - eina daginn sem vinna í námunni í litlum bæ í Québec liggur niðri og verslunin iðar af mannlífi. Þorpsbúar geta gleymt fátækt sinni í nokkrar klukkustundir og þeir safnast saman í versluninni, sýna sig og sjá aðra og gleðjast saman. Þetta kvöld ber í skauti sér óvænta vígslu inn í harðari og ruddalegri hliðar lífsins fyrir Jaques og kynni af harmleik og dauða. National Film Board of Canada (Montréal, Québec) fá þakkir fyrir myndina. |
||
18:00
|
Tales from the Gimli Hospital |
![]() |
Leikstjóri Guy Maddin, enskt tal, 1988, 68 mín. Tinna Grétarsdóttir fylgir myndinni úr hlaði. Flokkur: Vestur-Íslendingar |
||
Á meðan móðir þeirra liggur banaleguna á nýtísku sjúkrahúsi í Gimli í Manitoba, hlýða tvö ung börn hennar á sögur íslenskrar ömmu sinnar um hinn einmana Einar og vin hans Gunnar sem bjuggu í Gimli sem ekki er lengur til. Bólusótt geisar í smáþorpinu Gimli og Einar og Gunnar deila því sem virðist vera eina herbergi sjúkrahússins. Þeir keppa um athygli hjúkrunarkvennanna með sögum sem verða æ furðulegri og flóknari eftir því sem samkeppnin á milli þeir vex stig af stigi. Guy Maddin og Extra Largin Film Group (Winnipeg, Manitoba) fá þakkir fyrir myndina. |
||
![]() |
![]() |
![]() |
|---|