Festival des cinémas nordiques, Reyjavik, Islande

 

SUNNUDAGUR 26. FEBRÚAR, 2006

Allar myndirnar eru sýndar í Norræna húsinu
(www.nordice.is • Sturlugata 5 • 101 Reykjavík • Ísland)
Ókeypis aðangur

 

18:00

Opnun

 

18:05

The Importance of being Icelandic

Leikstjóri Jón E. Gústafsson, enskt tal, 1998, 39 mín. Tinna Grétarsdóttir kynnir myndina og svarar spurningum að henni lokinni.

Flokkur: Vestur-Íslendingar

Í þessari mynd fylgist leikstjórinn Jón E. Gústafsson (fæddur á Íslandi en nú búsettur í Kanada) með ólíkum ferðum þriggja Vestur-Íslendinga til Íslands í leit að íslenskum uppruna sínum. Auk þess að gera tíma þeirra á Íslandi skil, fylgir hann þeim aftur til Kanada og fylgist með viðbrögðum þeirra við árlegum hátíðarhöldum á Íslendingadeginum í Gimli. Í miðpunkti myndarinnar eru mismunundi sjónarhorn á viðhorf leikstjórans til kanadískrar menningar annars vegar og hins vegar leit þriggja Vestur-Íslendinga að arfi forfeðra sinna.

Jón E. Gústafsson og Marble Island Picture fá þakkir fyrir myndina.

 

19:00


The Snow Walker

 

Leikstjóri Martin Smith, enskt tal, 2003, 103 mín. Sherill E. Grace kynnir myndina og svarar spurningum að henni lokinni.

Flokkur: Enskumælandi Kanada

Charlie Lavery flugmaður brotlendir vél sinni fjarri mannabyggðum og brýst yfir túndruna óendanlegu í leit að mannabústöðum. Eftir verður ung eskimóakona - falleg og viðkvæm. Eftir skelfilega baráttu fyrir tilveru sinni hnígur Lavery að lokum örmagna niður. Á dularfullan hátt birtist unga konan á ný honum til bjargar og smátt og smátt kemur hann auga á dulúðleg tengsl hennar við landið. Byggt á skáldsögu Farley Moratt.

Infinity Media (Vancouver, B.C.) og First Look (Los Angeles, USA) fá þakkir fyrir myndina.

 

21:00

Léttar veitingar í boði sendiherra Kanada, Hr. Richard Têtu.

 


Logo Imaginaire du Nord
Logo Reykjaviku Akademian
Logo Embassy of Canada
Logo CRILCQ
Logo UQAM
Logo Winter Festival of the City Reykjavik
Logo Kviksaga - Documentary Center